Lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi fá aðgengi að 3,2 milljarða króna fjármögnun í gegnum InvestEU áætlun Evrópusambandsins

  • Evrópski fjárfestingasjóðurinn hefur undirritað samning við Byggðastofnun um bakábyrgðir að upphæð allt að 3,2 milljörðum króna vegna lána til lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
  • Ábyrgðin er studd af InvestEU áætlun Evrópusambandsins.
  • Nýjar lánveitingar Byggðastofnun verða með sveigjanlegri skilmálum, til að styðja meðal annars við unga bændur, viðkvæm byggðarlög og konur í frumkvöðlastarfsemi.

 

Evrópski fjárfestingasjóðurinn hefur undirritað samning um bakábyrgðir við Byggðastofnun vegna lána til lítilla og meðalstórra fyrirtækja í landsbyggðunum.

Ábyrgðir EIF, sem njóta stuðnings InvestEU áætlunar Evrópusambandsins, munu gera Byggðastofnun kleift að veita allt að 3,2 milljarða króna í formi nýrra útlána með sveigjanlegri skilmálum. Fjármagninu er einkum ætlað að styðja við unga bændur, viðkvæm byggðarlög og konur í frumkvöðlastarfsemi. Gert er ráð fyrir að styðja við að minnsta kosti 50 lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi. 

Við undirritun samkomulagsins í fjármálaráðuneytinu í Reykjavík sagði Arnar Már Elíasson, forstjóri Byggðastofnunar:

“Ísland er eitt af dreifbýlustu löndum heims með aðeins 4 íbúa á hvern ferkílómeter. Því til viðbótar býr um 80% þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiðir af sér víðfeðm svæði þar sem fáir eða enginn býr. Innviðauppbygging í dreifðum byggðum er krefjandi og kostnaðarsöm. Ábyrgðakerfi InvestEU veitir Byggðastofnun nauðsynleg úrræði til að veita mikilvæga og hagkvæma lánamöguleika í landsbyggðunum til að jafna lífskjör allra landsmanna”. - Arnar Már, Byggðastofnun

 

Thomas Östros, varaforseti EIB Group, tók undir þetta:

“Eitt af markmiðum EIB Group er að styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki. Með því að útvíkka InvestEU áætlun Evrópusambandsins til EFTA ríkja er EIF að útvíkka ábyrgðakerfið til Íslands. Frumkvöðlar í landbyggðunum standa frammi fyrir áskorunum, bæði umhverfis og fjárhagslegum og því erum við ánægð að styðja við Byggðastofnun í að efla lánamöguleikana.” - Thomas Östros, EIB group

 

Samkomulagið við Byggðastofnun er fyrsta ábyrgðasamkomulagið á Íslandi sem er stutt af InvestEU áætluninni.

 

Lucie Samcová - Hall Allen, sendiherra ESB á Íslandi sagði að:

“Í nú um þrjá áratugi hafa íslensk fyrirtæki, háskólar, rannsóknarstofnanir og aðrir tekið þátt í mismunandi áætlunum á vegum Evrópusambandsins. Árangurshlutfall þessara aðila er mjög hátt og eru þeir mikils metnir af alþjóðlegum samstarfsaðilum. Ábyrgðasamkomulagið sem við skrifum undir við Byggðastofnun í dag er fyrsta samkomulagið um bakábyrgðir InvestEU áætlunarinnar á Íslandi. Ég hlakka til að sjá hvernig það mun hjálpa litlum fyrirtækjum í landsbyggðunum að vaxa og dafna”. - Sendiherra ESB, Lucie Samcová-Hall Allen

Þetta er annað ábyrgðasamkomulag Byggðastofnunar og EIF.  Fyrra samkomulagið (COSME Loan Guarantee Facility) bætti aðgengi íslenskra fyrirtækja í landsbyggðunum að fjármagni með um 100 lánum að fjárhæð 4,3 milljörðum króna á árunum 2021-2023.

Bakgrunnsupplýsingar:

Evrópski fjárfestingasjóðurinn (EIF) er hluti samstæðu Fjárfestingarbanka Evrópu (EIB). Markmið hans er að styðja lítil og meðalstór fyrirtæki með aðgengi að fjármagni.  EIF hannar og þróar fjármögnunarleiðir og ábyrgðir sem eru sérstaklega sniðin að þörfum þessara fyrirtækja.  Í þessu hlutverki sínu endurspeglar sjóðurinn markmið Evrópusambandsins um stuðning við nýsköpun, rannsóknir og þróun, frumkvöðlastarfsemi, vöxt og sköpun starfa.  Síðan fyrsta verkefninu var hleypt af stokkunum í Noregi árið 1974 hefur samstæða EIB lagt um 900 milljarða króna til stuðnings verkefna á EFTA svæðinu, þar af um 750 milljarða króna í gegnum EIB og um 150 milljarða króna í gegnum Evrópska fjárfestingasjóðinn. Í heildina hefur samstæða EIB komið að fjármögnun um 180 milljarða króna með fjármögnun EIB og EIF á Íslandi.

 

InvestEU áætlunin veitir Evrópusambandinu mikilvæga langtímafjármögnun með því að nýta umtalsvert fjármagn einkaaðila og hins opinbera til að styðja við sjálfbær hagkerfi. Hún aðstoðar við að skapa frekari fjárfestingar í samræmi við stefnu og forgangsröðun ESB, svo sem Europe Green Deal, stafræn umskipti og stuðning við lítil og meðalstór fyrirtæki. InvestEU sameinar alla fjármálagerninga ESB undir einu þaki sem gerir fjárfestingaverkefni í Evrópu einfaldari, skilvirkari og sveigjanlegri. Áætlunin samanstendur af þremur þáttum: InvestEU Fund, InvestEU Advisory Hub og InvestEU Portal. InvestEU Fund er innleiddur í gegnum samstarf fjármögnunaraðila sem fjárfesta í verkefnum með því að nýta EU ábyrgð að upphæð allt að 3.930 milljarða króna. Þessar ábyrgðir auka áhættuberandi getu til að virkja þannig að minnsta kosti 55.800 milljarða króna fjárfestingar.

 

Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu.  Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi.

 

Tengiliðir:

EIB Group: Tim Smit, +352 691 286 423, t.smit@eib.org

Byggðastofnun: Hrund Pétursdóttir, +354 455 5400, hrund@byggdastofnun.is

Framkvæmdastjórn ESB: Flora Matthaes, +32 460 755148, flora.matthaes@ec.europa.eu

Sendinefnd ESB á Íslandi: Viktor V. Stefánsson, +354 864 3386, Viktor.STEFANSSON@eeas.europa.eu

Tengiliðir:

EIB Group: Tim Smit, +352 691 286 423, t.smit@eib.org

Byggðastofnun: Hrund Pétursdóttir, +354 455 5400, hrund@byggdastofnun.is

Framkvæmdastjórn ESB: Flora Matthaes, +32 460 755148, flora.matthaes@ec.europa.eu

Sendinefnd ESB á Íslandi: Viktor V. Stefánsson, +354 864 3386, Viktor.STEFANSSON@eeas.europa.eu