Meginhlutverk sendinefndarinnar er að vera fulltrúi ESB gagnvart stjórnvöldum á Íslandi, miðla upplýsingum til höfuðstöðva ESB í Brussel um afstöðu og hagsmuni Íslands og veita almennum borgurum, félaga- og hagmunasamtökum, fjölmiðlum og öðrum, upplýsingar um ESB.

Hlutverk sendinefndarinnar

Sendinefndin hefur stöðu sendiráðs og er fulltrúi Evrópusambandsins á Íslandi. Sendinefndin er ein af um 140 sendinefndum sem ESB starfrækir víðsvegar um heiminn, í löndum sem ekki eru aðilar að ESB. Sendinefndin var opnuð á Íslandi í janúar 2010. Fram að þeim tíma hafði sendinefnd ESB í Noregi haft umsjón með samskiptum við Ísland.