THIS CONTENT HAS BEEN ARCHIVED

Evrópuþingskosningarnar: Stærstu lýðræðislegu alþjóðakosningar í heiminum

05.07.2019
Teaser

Þessa dagana, þegar valið er í æðstu embætti Evrópu, sjáum við mikilvægi Evrópuþingskosninganna í verki. Hér má lesa grein sendiherra ESB um kosningarnar og þýðingu þeirra.

Main Image
Text

Í dag og næstu daga, 23.-26. maí, ganga hundruð milljóna Evrópubúa til kosninga og kjósa sér nýtt þing. Kjósendur allstaðar að úr Evrópusambandinu munu vega og meta frambjóðendur og stefnuskrár þeirra er þeir ganga að kjörborðinu og kjósa fulltrúa til að móta framtíð meginlandsins og hlutverk Evrópusambandsins í heiminum til margra ára.Evrópusambandið er einstakt verkefni sem byggir á friðsamlegri samvinnu landa sem trúa því að sameinuð standi þau sterkari að vígi. Þegar kemur að alþjóðlegum viðskiptasamningum, baráttunni gegn loftlagsbreytingum, og því að takast á við fólksflutninga eru ESB-löndin margfalt sterkari þegar þau deila fullveldi sínu og vinna saman.Þessi mikla lýðræðishátíð sýnir að andstæðingar sambandsins hafa rangt fyrir sér þegar þeir halda því fram að Evrópusambandið sé ólýðræðislegt og að borgarar þess hafi engin áhrif. Evrópuþingið er kjörið í beinni kosningu. Það ræðir löggjöf ESB, breytir henni og samþykkir síðan, ásamt með ráðherraráðinu, sem skipað er lýðræðislega kjörnum ráðherrum frá aðildarlöndunum 28. Þess má geta að kosningarnar skipta líka máli fyrir Ísland. Sem aðili að Evrópska efnahagssvæðinu innleiðir Ísland lög sem samþykkt eru á Evrópuþinginu.

ESB vinsælla en áður

Nú í aðdraganda kosninganna 2019 eru margir sem vilja grafa undan því sem Evrópusambandið hefur áorkað til þessa og jafnvel eyðileggja það. Til allrar hamingju þá eru slíkar skoðanir á öndverðum meiði við álit flestra, samkvæmt nýlegum skoðanakönnunum sem sýna vaxandi stuðning við Evrópusambandið. Nýjasta Eurobarometer skoðanakönnunin sem gerð var fyrir Evrópuþingið sýndi að 62% ríkisborgara telja að Evrópusambandsaðild lands síns hafi verið til góðs, og tveir af hverjum þremur (68%) eru sannfærðir um að land þeirra hafi notið góðs af því að vera aðili að Evrópusambandinu. Þetta er besta einkunn sem ESB hefur fengið frá því 1983.Um 66% aðspurðra myndu kjósa með því að landið þeirra yrði áfram aðili að Evrópusambandinu sem og meirihluti fólks í öllum aðildarríkjum ESB. Aðeins 17% myndu íhuga að yfirgefa Evrópusambandið, og 17% voru óákveðin. En þó svo að þessar tölur séu uppörvandi, er mikið verk óunnið.

Kosið um árangur

Síðustu vikur hafa borgarar Evrópusambandsins kynnt sér hvernig og hvað Evrópusambandið gerir til þess að vernda þá, skapa ný tækifæri og sýna styrkleika Evrópusambandsins út á við. Kosningabaráttan hefur vakið athygli á þeim árangri sem næst á degi hverjum, í málefnum eins og baráttunni gegn hryðjuverkum, gegn undirboði á vörum og þjónustu, og í baráttunni fyrir því að netrisar sæti ábyrgð og virði persónuverndarlög.Á tímum fjölmargra áskorana hafa stofnanir Evrópusambandsins unnið hörðum höndum að því að tryggja góða þátttöku í kosningunum í ár. Það er mikilvægara en nokkru sinni áður að úrslitin endurspegli skoðanir sem flestra Evrópubúa.Sterkt, lýðræðislegt Evrópusamband er okkur öllum í hag. Evrópsku þingkosningarnar eru lykillinn að því að tryggja að sú verði raunin.

 

Höfundur er sendiherra ESB á Íslandi

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu, 23. maí 2019.

Post category
Voices and views
Editorial sections
Iceland