Sendinefnd ESB þakkar Vilborgu Harðardóttur fyrir vel unnin störf
© European Union, 2025
Vilborg Harðardóttir lauk störfum sínum í vikunni sem starfsnemi við stjórnmála- og upplýsingadeild sendinefndarinnar.
Sem starfsnemi sá Vilborg um verkefni sem sneru m.a. að störfum Alþingis, EES-samstarfinu, orkumálum, umhverfis- og loftslagsmálum, sjávarútvegsmálum, öryggis- og varnarmálum o.fl.
Þar að auki kom Vilborg að skipulagningu viðburða og sinnit þýðingarvinnu og umsjón samfélagsmiðla.
Sendinefndin þakkar henni fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar í nýjum verkefnum.