Forsætisráðherra fundaði með sendiherrum ESB-ríkja

Mánudaginn 16. júní 2025 var forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, heiðursgestur á árlegum fundi sendiherra aðildarríkja ESB gagnvart Íslandi sem haldinn var í Safnahúsinu í Reykjavík. 

 

Árlegur sendiherrafundur aðildarríkja Evrópusambandsins gagnvart Íslandi var haldinn í Safnahúsinu á mánudaginn 16. júní, en heiðursgestur fundarins var forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir. 

Forsætisráðherra kynnti helstu verkefni og áherslur ríkisstjórnar sinnar fyrir sendiherrunum og ræddi m.a. nýlegar vendingar í íslenskum stjórnmálum, varnar- og öryggismál, og EES-samstarfið. 

Sendiherrar 20 af 27 aðildarríkjum ESB mættu sóttu fundinn í Reykjavík í ár eða sendiherrar Póllands, Danmerkur, Írlands, Litháens, Grikklands, Ítalíu, Lettlands, Hollands, Eistlands, Búlgaríu, Rúmeníu, Finnlands, Þýskalands, Portúgals, Slóveníu, Frakklands, Tékklands, Svíþjóðar, Spánar, Ungverjalands. 

Sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Clara Ganslandt, stýrði fundinum. 

Iceland PM

HOMS with PM

HOMS 2025