THIS CONTENT HAS BEEN ARCHIVED

Yfirlýsing á alþjóðlegum baráttudegi kvenna

08.03.2017
Teaser

Það er sorglegt að við þurfum enn á sérstökum kvennadegi eða baráttudegi kvenna að halda. Jafnrétti hefur verið eitt af grunngildum ESB allt frá stofnun þess fyrir sextíu árum. Nú starfa fleiri konur en karlar innan Framkvæmdastjórnarinnar en þó er mikið óunnið í þessum efnum, þar sem annarsstaðar. Ef við gerum öll það sem við getum til að stuðla að jafnrétti þá kemst það á að lokum. Þetta er sérstaklega mikilvægt á heimilinu, í uppeldi barna sem og á vinnustöðum og í félagslífi allskonar, t.d. íþróttastarfi. Gerum okkar besta og bestum þannig okkur! Gerum baráttudag kvenna óþarfan fyrir börnin okkar.

Text

FULLTRÚAR FRAMKVÆMDASTJÓRNAR EVRÓPUSAMBANDSINS SKRIFA 

Evrópusambandið stendur í dag með konum í Evrópu og um allan heim, eins og það hefur gert allt frá stofnun þess.Fyrir sextíu árum síðan var jafnrétti karla og kvenna rammað inn í Rómarsáttmálann, sem eitt af grunngildum Evrópusambandsins. Á þeim tíma var stuðningur Evrópu við prinsippið um sömu laun fyrir sömu vinnu einstakur í heiminum. Síðan þá hefur ESB haldið forystunni og náð sýnilegum árangri á öllum vígstöðvum. Við vinnum þrotlaust að því að verja rétt kvenna og valdefla þær í baráttunni gegn mismunun og kynbundnu ofbeldi.Árið 2017 eru fleiri konur við störf, fleiri konur sem útskrifast úr háskólum og fleiri konur virkar í stjórnmálum og efri stjórnunarstöðum við evrópsk fyrirtæki en nokkru sinni fyrr. Innan Framkvæmdastjórnar ESB eru konur 55% alls vinnuafls. Engu að síður harka of margar konur, ekki síst einstæðar mæður, til að öðlast efnahagslegt sjálfstæði innan Evrópusambandsins. Atvinnuþátttaka kvenna innan Evrópusambandsins náði sögulegu hámarki í 65,5% árið 2016, og er þó enn verulegur munur á henni og 77% atvinnuþátttöku karla.Betur má ef duga skal, bæði innan og utan Evrópu. Konur eru iðulega á meðal hinna berskjölduðustu, í átökum, við fólksflutninga og vergang og við aðstæður þar sem fátækt og loftslagsbreytingar hafa hvað verst áhrif. Í samhengi yfirstandandi fólksflutninga fjölgar að auki gríðarlega þeim konum sem eru fórnarlömb mansals og koma til Evrópsambandsins.Umburðarleysi í garð kvenna og kvenfyrirlitning birtast í almannarýminu ekki síður en í huglausu skjóli nafnleyndar á netinu. Árásir gegn réttindum kvenna færast í aukana. Of margir Evrópubúar halda enn að kynmök án samþykkis geti verið réttlætanleg. Þá eru konur í fremstu víglínu mismununar og ofbeldis, ekki síst á átakasvæðum heims.Hins vegar eru konur einnig þær fyrstu til að leita lausna, til að leita staðfestu á tímum áskorana og finna framtíðarsýn fyrir lönd sín. Þess vegna heldur ESB áfram að starfa með kvennahópum um allan heim, einnig í erfiðustu aðstæðum, á við Afganistan og Sýrland.Við munum enn sem fyrr grípa til aðgerða, bæði heima og erlendis. Einkum: 

  • Fyrir tilstilli Marksækins átaks um kynjajafnrétti 2016–2019 tekst Framkvæmdastjórn ESB á við ójöfnuð á lykilsviðum svo sem atvinnuþátttöku, launajöfnuði, aðkomu að ákvarðanatöku, og ofbeldi.
  • Framkvæmdastjórn ESB hefur tileinkað árið 2017 útrýmingu allra tegunda ofbeldis gegn konum og stúlkum.
  • Framkvæmdastjórnin mun á árinu kynna nýtt átak í þágu jafnvægis á milli einkalífs og atvinnu fyrir foreldra og aðstandendur.
  • Samkvæmt tillögum að endurbótum á hinu sameiginlega evrópska hælisveitingakerfi munu þær konur sem koma til Evrópu í leit að vernd og hafa orðið fyrir tjóni njóta heilbrigðisþjónustu, lögfræðiráðgjafar, áfallahjálpar, félags- og sálfræðiráðgjafar.
  • Framkvæmdastjórnin mun halda áfram að taka mið af kynjavíddinni í forvörnum og baráttu gegn mansali við innleiðingu stefnu sinnar og löggjafar í málaflokknum
  • Á sviði utanríkismála mun Framkvæmdastjórnin, fyrir tilstuðlan Aðgerðaáætlunar ESB í kynjamálum 2016–2020, einkum miða við að veita stuðning þeim konum og stúlkum sem víða um veröld er haldið frá menntunartækifærum og frá jöfnum aðgangi að heilbrigðisþjónustu og ráðagerð við stofnun fjölskyldu, frá vinnumarkaði og frá stjórnmálaþátttöku, um leið og þær verða fyrir mismunun í lögum og reglum um erfðarétt, ríkisborgararétt og eignarhald á landi.
  • Til að tryggja að stuðningurinn nái til hinna berskjölduðustu í heiminum, mun Framkvæmdastjórnin enn sem fyrr nálgast mannúðaraðstoð með tilliti til kyns.
  • Framkvæmdastjórnin mun halda áfram að leiða brautina við innleiðingu markmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, að meðtöldu kynjajafnrétti.

 Við megum ekki og við munum ekki leggja niður vopnin í baráttunni fyrir jöfnuði kynjanna, til að tryggja öryggi kvenna og stúlkna, og efla þær til að sjá afrakstur getu sinnar. Evrópusambandið er skuldbundið nú, eins og það var fyrir 60 árum, til að tryggja konum jafnrétti um allan heim.Frans Timmermans, fyrsti varaforseti Framkvæmdastjórnar ESBFederica Mogherini, æðsti talsmaður utanríkismála og öryggisstefnu ESB og varaforseti FramkvæmdastjórnarinnarGünther Oettinger, framkvæmdastjóri mannauðs og fjárreiðaJohannes Hahn, framkvæmdastjóri nágrannastefnu og stækkunarviðræðnaNeven Mimica, framkvæmdastjóri alþjóðasamstarfs og þróunarDimitris Avramopoulos, framkvæmdastjóri innflytjenda- og innanríkismálaMarianne Thyssen, framkvæmdastjóri atvinnumála, félagsmála og hreyfanleika vinnuaflsChristos Stylianides, framkvæmdastjóri mannúðaraðstoðar og krísustjórnunarVera Jourová, framkvæmdastjóri réttlætis-, jafnréttis- og neytendamála

 

Greinin birtist fyrst á Vísi, 8. mars 2017http://www.visir.is/sameiginleg-yfirlysing-a-althjodlegum-barattudegi-kvenna/article/2017170309031

Category
Statements on behalf of the EU
Location

Reykjavik

Editorial sections
Iceland