Fréttir
EES: Ástand og áskoranir
Föstudaginn 10. apríl kl. 9:00-10:30 í Norræna húsinuMikil óvissa ríkir um stöðu og framtíð EES-samningsins. Á sama tíma er ESB að gera úttekt á samskiptum sínum við Sviss, eftir að ýmsir erfiðleikar hafa komið upp í tvíhliða samstarfi þeirra að undanförnu. Á þessum fundi verður núverandi staða EES-samningsins skoðuð. Er hægt að réttlæta hann út frá lýðræðislegum sjónarmiðum? Hver er afstaða ESB til samningsins? Er „svissneska lausnin“ raunverulegur valkostur fyrir EES-löndin? Hver er afstaða ESB til slíks tvíhliða samstarfs?
Evrópuþingmaðurinn Andreas Schwab mun fjalla um skýrslu sem Evrópuþingið vinnur að um EES-samninginn og samskipti ESB og Sviss
Andreas Schwab er þingmaður á Evrópuþinginu og skýrslugjafi (e. rapporteur) nefndar þingsins um EES-samninginn og samskipti ESB og Sviss.
EES-samningurinn: Aukið frelsi eða skilyrt sjálfstæði?
John Erik Fossum er prófessor við ARENA, Evrópufræðasetur Háskólans í Osló, og höfundur bókarinnar Det Norske Paradoks.
Hröðun á innleiðingu ESB gerða í EES-samninginn?
Jóhanna Jónsdóttir er með doktorspróf í Evrópufræðum frá Cambridge háskóla og starfar sem sérfræðingur hjá EFTA.
Eftir erindin verða pallborðsumræður með fyrirlesurum en að auki mun Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis, taka þátt.
Fundarstjóri: Baldur Þórhallsson, deildarforseti og prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir. Boðið verður upp á kaffiveitingar frá kl. 8:30 til 9:00.
Nánari upplýsingar:
Alþjóðamálastofnun, www.ams.hi.is
Alþjóðamálastofnun á Facebook: www.facebook.com/althjodamalastofnun
Evrópustofa á Facebook: www.facebook.com/evropustofa
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, í samstarfi við Evrópustofu, stendur fyrir opnum fundum um málefni sem eru ofarlega í umræðunni í Evrópu um þessar mundir. Sjónum er sérstaklega beint að EES-samningnum, dýravelferð, heilbrigðisþjónustu yfir landamæri, utanríkismálum og stjórnmálaástandinu í Evrópu.