Vel heppnuð opnun Evrópustofu (21/01/2012)
Evrópustofa - upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi tók formlega til starfa síðasta laugardag að Suðurgötu 10 í Reykjavík og stóð opnunarhátíðin til kl. 16. Við opnunarathöfnina voru viðstödd Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra, Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra Evrópustofu. Í ávarpi fjármálaráðherra við opnunina undirstrikaði hún að innan tíðar stæði íslensk þjóð frammi fyrir mikilvægri ákvörðun.
"Þetta verður ákvörðun sem sem varðar ungt fólk og framtíð þess. Því er nauðsynlegt að upplýsingar um Evrópumál verði ungu fólki aðgengilegar. Opnun Evrópustofu er stórt lýðræðislegt skref. Lýðræðið þrífst jú ekki án upplýsinga. Ég vænti þess að Evrópustofa stuðli að upplýstri og góðri umræðu um þessi mikilvægu mál. "
Þá voru ráðherrann og sendiherrann fengin til að bregða á leik og taka fyrstu myndirnar í ljósmyndasamkeppni sem Evrópustofa stendur fyrir og allir geta tekið þátt í. Þemað í keppninni er Ísland og Evrópa.
Það var stöðugur gestagangur í Evrópustofu allan daginn þar sem fólki var boðið upp á léttar veitingar og tónlistaratriði. Gestum gafst jafnframt færi á að fræðast um Evrópusambandið og prófa þekkingu sína í Evrópumálum, leggja fram spurningar og tjá skoðanir sínar á "kassanum" þar sem hægt var að kveða sér hljóðs og halda örstutt erindi.
Nánari upplýsingar eru á www.evropustofa.is og fésbókarsíðunni www.facebook.com/evropustofa.