Átta af 33 samningsköflum lokað í aðildarviðræðum Íslands við ESB (13/12/2011)
Þriðja ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins fór fram í Brussel fyrr í vikunni og fór Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fyrir íslensku sendinefndinni.
Af fimm köflum sem voru til umræðu á fundinum var fjórum lokað til bráðabirgða. Frá því að efnislegar viðræður hófust í júní á þessu ári hafa 11 af 33 samningsköflum verið opnaðir. Af þeim hefur átta verið lokað.
Þeir kaflar sem voru opnaðir og lokaðir til bráðabirgða voru: Kafli sex – Félagaréttur, kafli 20 – Atvinnu- og iðnstefna, kafli 21 – Evrópsk samgöngunet og kafli 23 – Réttarvarsla og grundvallarréttindi. Þá hófust samningar um kafla 33 um framlagsmál.
Þá staðfesti ráðstefnan opnun og bráðabirgðalokun annars kafla um frjálsa för vinnuafls og sjöunda kafla um hugverkarétt sem voru opnaðir og lokað til bráðabirgða á ríkjaráðstefnunni í Brussel þann 19. október síðastliðinn.
Í upphafi ávarps síns á ríkjaráðstefnunni lýsti Stefan Füle, framkvæmdastjóri stækkunarmála ESB, yfir ánægju með framgang samningaviðræðnanna við Ísland og sagði að markverður árangur hafi nú þegar náðst.
„Ef ekki hefði verið fyrir framúrskarandi vinnu íslenskra samstarfsaðila okkar hefði árangur sem þessi verið ómögulegur en hann sýnir jafnframt sterka og staðfasta skuldbindingu íslenskra stjórnvalda í aðildarferlinu.“ Þá tjáði hann vilja framkvæmdastjórnarinnar til að byggja á þessari skuldbindingu og gera næsta ár að mikilvægu ári í aðildarferlinu.
Hann sagði jafnframt að hraði aðildarviðræðnanna gæfi gott fordæmi fyrir vinnu ársins 2012: „Það gagnkvæma traust sem ríkir á milli samningsaðila og það vinnulag sem komið er á hefur gert okkur kleift að halda aðildarferlinu áfram – eins vandlega og eins hratt og nauðsynlegt er... Markmiðið fyrir árið 2012 er að opna fyrir viðræður um nær alla samningskaflana og að reyna að loka sem flestum.“
Næsta ríkjaráðstefna er ráðgerð í Brussel í mars á næsta ári.