Velkomin
Velkomin(n) á heimasíðu sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi.
ESB er í nánu og víðtæku samstarfi við Ísland. Frá árinu 1994 hefur samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) verið hornsteinninn í samskiptum ESB og Íslands. EES-samningurinn veitir fyrirtækjum og einstaklingum aðgang að hinum sameiginlega innri markaði ESB og rétt til að nýta sér frelsi í viðskiptum, þjónustu-, fjármagns- og fólksflutningum í 30 löndum EES-samstarfsins. Að auki tekur Ísland fullan þátt í mörgum samstarfsáætlunum ESB, til dæmis á sviði menntunar og rannsókna. Fjölmargir Íslendingar hafa nýtt sér réttinn til þátttöku í þessum áætlunum.
Ísland er einnig samstarfsaðili í Schengen-samstarfinu sem felur meðal annars í sér að einstaklingar geta ferðast án vegabréfs á milli þeirra 25 landa í Evrópu sem mynda Schengen-svæðið.
Samskipti ESB og Íslands hafa orðið enn nánari í kjölfar ákvörðunar Íslands að sækja um aðild að ESB. Í framhaldi af því ákvað ESB að opna sendinefnd á Íslandi og tók hún til starfa í byrjun árs 2010.
Sendinefndin hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að greiða fyrir samskiptum á milli ESB og íslenskra yfirvalda í málum er varða aðildarferli Íslands að ESB.
Hlutverk okkar í sendinefndinni er ennfremur að veita áreiðanlegar upplýsingar um aðildarferlið og Evrópusambandið almennt, stofnanir þess og stefnu. Það er mikilvægt að almennir borgarar, félaga- og hagsmunasamtök séu virk í umræðunni um aðild að ESB og að upplýsingar um ESB séu aðgengilegar. Tilgangur þessarar vefsíðu er að vera ein slík uppspretta upplýsinga.
Timo Summa
Sendiherra og yfirmaður sendinefndar ESB á Íslandi